Samantekt um þingmál

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

843. mál á 150. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að styðja við lífvænleg sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem standa frammi fyrir mikilli óvissu um fjármögnun og erfiðleikum vegna neikvæðra áhrifa kórónuveirufaraldursins.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að bráðabirgðaákvæði verði bætt við lögin, sem feli í sér umgjörð um framkvæmd og veitingu mótframlagslána úr Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins í samvinnu við fjárfesta.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, nr. 61/1997.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það muni leiða til aukinna útgjalda fyrir ríkissjóð umfram það sem nú þegar hefur verið gert ráð fyrir til verkefnisins í fjáraukalögum fyrir árið 2020, sbr. lög nr. 36/2020.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingu.

Aðrar upplýsingar

Viðspyrna fyrir Ísland - efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19.


Síðast breytt 01.07.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.